ENGLISH   |   VEFYFIRLIT 

    

Kynning á greiðslu- og innheimtuþjónustu Momentum

Momentum og Gjaldheimtan bjóða sínum viðskiptavinum eftirafandi innheimtuleiðir: 

  • Heildarinnheimtu
  • Fruminnheimtu
  • Milliinnheimtu
  • Löginnheimtu
  • Kröfuvakt

Með beinlínutengingu við Momentum geta kröfuhafar sent inn gögn og fylgst með stöðu mála hvenær sem er, einnig skapar beinlínutenging við bókhaldsforrit fyrirtækja öryggi og gefur kröfuhöfum kost á að fylgjast með stöðu krafa. Upplýsingar uppfærast daglega og uppgjör krafa fer fram ekki síðar en daginn eftir að þær eru greiddar.

Heildarinnheimta
Ferli heildarinnheimtu nær frá útsendum greiðsluseðlum til lögfræðiinnheimtu og kröfuvaktar ef þörf krefur. Momentum heldur utan um innheimtuferlið þar til krafa fæst greidd eða aðgerðir eru metnar árangurslausar.

Fruminnheimta
Í fruminnheimtu er krafa skráð í innheimtukerfi Momentum við útgáfu reiknings. Einnig er hægt að skrifa reikning samhliða greiðsluseðli.

Milliinnheimta
Milliinnheimta tekur við ef skuld er enn ógreidd þegar komið er fram yfir eindaga á reikningi. Milliinnheimta er alfarið á kostnað skuldara. Skuldari fær send fjögur bréf með reglubundnum hætti. Í fyrsta bréfinu (Áminning) sem kostar skuldara mjög lítið er krafan sundurliðuð og skuldara gerð grein fyrir næstu aðgerðum. Kröfuhafi velur hversu marga daga hann vill láta líða milli útsendra bréfa, 10 - 15 dagar er algengast. Bréf tvö (Ítrekun) er dýrara fyrir skuldara því þá er kostnaður í hlutfalli við upphæð skuldarinnar. Bréfin (Aðvörun og Lokaaðvörun) taka þá við og að lokum símtal, hafi krafan ekki fengist greidd. Innheimtukostnaði sem fellur á skuldara er stillt mjög í hóf en þó er tekið mið af að hann sé nægileg hvatning fyrir skuldara til að greiða áður en til þess kemur að hann bætist við kröfuna. Kröfuhafi fær alltaf óskertan höfuðstól og vexti í sinn hlut og innheimtan er án kostnaðar fyrir hann.

Löginnheimta
Ef aðgerðir í milliinnheimtu hafa ekki borið árangur, þá er löginnheimta oftast síðasta og eina úrræðið. Gjaldheimtan ehf. og Momentum hafa gert með sér samstarfssamning, sem felur í sér að Gjaldheimtan annast löginnheimtu á kröfum þeirra viðskiptavina Momentum sem það kjósa.
Í löginnheimtu er úrræðum réttarkerfisins beitt við innheimtu vanskilakrafna. Það fer eftir tegund kröfu hvaða úrræðum er beitt, en hér er um að ræða aðgerðir s.s. stefnubirtingu, greiðsluáskorun, dómsmeðferð, fjárnám, nauðungarsölu og gjaldþrot. Kröfuhöfum er boðið faglegt mat á mögulegum innheimtuárangri, verði krafa sett í löginnheimtu.

Kröfuvakt
Momentum býður upp á vöktun á kröfum sem ekki hefur tekist að innheimta þrátt fyrir ítrekaðar aðgerðir, einnig vöktun á þeim ógreiddu kröfum sem viðskiptavinir Momentum hafa verið með í frum- eða milliinnheimtu. Kröfuvaktin fylgist með skuldurum og sætir lagi með að innheimta þegar tækifæri gefst. Afskrifuðum málum er haldið gangandi í allt að 4 ár. Hafi hins vegar verið gerð dómsátt eða dómur kveðinn upp í málinu þá má vakta kröfuna í allt að 10 ár.


DotNetNuke Admin Login LS Veflausnir

Momentum greiðslu- og innheimtuþjónusta ehf  -  Suðurlandsbraut 18, 108 Reykjavík, Kt.: 691200-2050  -  Sími: 510 7700 Fax: 510 7710   -   Tölvupóstur: momentum@momentum.is