Tenging við viðskiptahugbúnað
Innheimtukerfi Momentum er hægt að tengja við viðskiptahugbúnað fyrirtækja. Viðskiptavinir Momentum bera engan kostnað af tengingunni.
Rafræn tenging milli viðskiptahugbúnaðar og innheimtukerfis Momentum sparar tíma, minnkar líkur á innsláttarvillum og eykur rekstrarhagræði (sjá samstarfsaðila).
Rafræn samskipti á vefsíðu Momentum:
Merkt er við þær kröfur sem eiga að fara í innheimtu í bókhaldskerfinu.
Upplýsingarnar eru sendar sem textaskrá í gegnum vefsíðu Momentum.
Krafa er stofnuð í kerfinu og hún fær kröfunúmer.
Kröfuhafi fylgist með framvindu innheimtu á vefnum.
Þegar kröfur greiðast er sótt textaskrá á vefinn sem er síðan færð beint inn í bókhaldskerfið