Hjá Momentum er innheimta alltaf án kostnaðar fyrir kröfuhafa. Hann greiðir ekki stofngjald, árgjald, skráningagjald eða innheimtuþóknun.
Kostnaður sem fellur á kröfu er mismunandi eftir upphæð kröfunnar. Megináhersla er lögð á að innheimta sé kröfuhafa alltaf að kostnaðarlausu og að það gjald sem fellur á greiðanda sé sanngjarnt en þó nægileg hvatning fyrir hann til að greiða. Momentum aðlagar sína gjaldskrá gjarnan að óskum kröfuhafa. Til að leita eftir tilboðum vinsamlegast hafið samband við starfsmenn Momentum í síma 510 7700 eða með netspósti: momentum@momentum.is. Einnig er tilvalið að panta kynningu á starfsemi Momentum á forsíðu þessarar vefsíðu með því að smella á "Kynning á þjónustu" og fylla út þar til gert form.