Einkunnarorð Momentum eru: Framsækin og skilvirk innheimtuþjónusta
Markmið Momentum er að innheimtuþjónusta fyrirtækisins sé heilsteypt og sem best aðlöguð að óskum og þörfum hvers viðskiptavinar. Ýmis ráðgjöf við lausn á innheimtu er innifalin í þjónustunni m.a. greining á viðskiptakröfum og mat á greiðsluhæfi skuldara. Tilgangur Momentum er að mæta kröfum nútímans um sérhæfða og skilvirka innheimtu, aukinn innheimtuárangur og hraðara upplýsingaflæði um vanskil.
Momentum gætir hagsmuna viðskiptavina sinna og sér um að innheimta kröfur þeirra, þeim að kostnaðarlausu. Momentum greiðir kröfuhöfum jafnóðum þær kröfur sem greiddar eru og fá þeir ætíð höfuðstól og dráttarvexti óskerta í sinn hlut. Uppgjör Momentum til kröfuhafa eru ávallt skýr og einföld, þau eru birt á þjónustuvef á vefsíðu Momentum. Stöðugt upplýsingaflæði milli kröfuhafa og Momentum um greiðslustöðu, innheimtuaðgerðir og vanskil veitir viðskiptavininum yfirsýn yfir raunstöðu útistandandi krafna.
Starfsfólk Momentum leggur áherslu á að sinna þörfum viðskiptavina fyrirtækisins með því að veita þeim bestu þjónustu sem völ er á. Til að svo megi verða starfa hjá fyrirtækinu lögmenn og lögfræðingar með sérþekkingu og langa reynslu í innheimtumálum. Ef einhverjar spurningar vakna varðandi þjónustu Momentum, vinsamlegast hafið samband við starfsfólk fyrirtækisins í síma 510-7700 eða á momentum@momentum.is og það veitir sína aðstoð með mestu ánægju.