ENGLISH | VEFYFIRLIT
Momentum og Gjaldheimtan hafa tekið upp samstarf við alþjóðlega innheimtu- og skuldastýringarfélagið STA International. STA var stofnað í New York árið 1955 en hefur í dag útibú víða um heim auk þess að hafa samstarfsaðila í flestum löndum heims.
STA er einnig aðili að alþjóðasamtökum innheimtufyrirtækja eins og t.d. European Collectors Association.
Með samstarfi okkar við STA getum við boðið viðskiptavinum okkar innheimtuþjónustu hvar sem er í heiminum; þjónustu sem byggir á þekkingu á viðskiptaumhverfi, tungumáli og menningu greiðanda hvar sem hann býr, því árangursrík innheimta verður að taka mið af aðstæðum á hverjum stað.
Gjaldtaka fyrir erlendar innheimtur er árangurstengd sem lágmarkar áhættu kröfuhafa af innheimtunni; ef við náum ekki að innheimta kröfuna ber kröfuhafi engan kostnað.
Kostnaður við árangursríka innheimtu reiknast sem hlutfall af höfuðstól kröfunnar. Hlutfallið er misjafnt eftir aldri kröfunnar og er hærra eftir því sem krafan er eldri, en einnig er kostnaðarhlutfallið nokkuð breytilegt eftir því hvar í heiminum greiðandi er staðsettur.
Kröfuhöfum er bent á að hafa samband við okkur og leita tilboða í innheimtu sinna krafna, hvar sem greiðandi er staðsettur.
Momentum greiðslu- og innheimtuþjónusta ehf - Suðurlandsbraut 18, 108 Reykjavík, Kt.: 691200-2050 - Sími: 510 7700 Fax: 510 7710 - Tölvupóstur: momentum@momentum.is