ENGLISH   |   VEFYFIRLIT 

    
Fréttir Minimize

Current Articles | Syndication

Tuesday, October 26, 2010 [CATEGORY]
Nýir viðskiptavinir hjá Momentum og Gjaldheimtunni
Enn bætist við ágætan viðskiptavinahóp okkar hjá Momentum og Gjaldheimtunni. Nú hefur Tryggingamiðstöðin gert samning við Momentum um milliinnheimtu og Orkuveita Reykjavíkur hefur samið við Gjaldheimtuna um löginnheimtu á grundvelli útboðs Reykjavíkurborgar númer 12365.
Tryggingamiðstöðin hyggst nýta sér milliinnheimtu Momentum, og mun Momentum taka við kröfum TM frá Arion banka sem sér um fruminnheimtuna. Unnið er að innleiðingu nýrra innheimtuferla hjá Tryggingamiðstöðinni og er stefnt á að allir kröfuflokkar félagsins verði komnir í nýtt ferli innan nokkurra vikna.
Orkuveita Reykjavíkur hefur gert samning við Gjaldheimtuna um löginnheimtu allra vanskilakrafna sem ekki fást greiddar í innheimtuferli Orkuveitunnar. Samningurinn byggir á niðurstöðum útboðs Reykjavíkurborgar númer 12365 og samningi sem borgin gerði við Momentum og Gjaldheimtuna í framhaldi af útboðinu.
Við þökkum Tryggingamiðstöðinni og Orkuveitu Reykjavíkur það traust sem okkur er sýnt með þessu og hlökkum til að vinna með starfsfólki félaganna að því að ná fram aukinni hagræðingu og bættum árangri í innheimtum.
    

DotNetNuke Admin Login LS Veflausnir

Momentum greiðslu- og innheimtuþjónusta ehf  -  Suðurlandsbraut 18, 108 Reykjavík, Kt.: 691200-2050  -  Sími: 510 7700 Fax: 510 7710   -   Tölvupóstur: momentum@momentum.is