ENGLISH   |   VEFYFIRLIT 

    
Fréttir Minimize

Current Articles | Syndication

Tuesday, July 07, 2009 [CATEGORY]
Tilkynning um breytingar vegna nýrra innheimtulaga

Eins og kunnugt er hefur viðskiptaráðherra gefið út reglugerð um framkvæmd nýrra innheimtulaga sem tóku gildi um áramótin.

Reglugerðin sem tekur gildi 1. febrúar, setur þak á innheimtukostnað, bannar vanskilagjöld frá kröfuhafa, prósentutengingu milliinnheimtugjalda og setur skýrar reglur um lengd innheimtuferils og hraða innheimtunnar. Gert er ráð fyrir að innheimtuaðilar verið búnir að aðlaga verðlagningu og innheimtuferla að kröfum reglugerðarinnar fyrir lok febrúar næstkomandi.

Momentum hefur alltaf lagt áherslu á að halda innheimtukostnaði niðri eins og kostur er, ásamt því að sýna greiðendum virðingu og samningslipurð. Ný reglugerð sem setur þak á innheimtukostnað kemur þess vegna ekki illa við okkar starfsemi þar sem okkar verðlagning hefur í langflestum atriðum verið innan marka reglugerðarinnar og er Momentum þess vegna þegar farið að gera samninga við viðskiptavini byggt á nýju reglugerðinni. Taka skal fram að í þessum breytingum fer Momentum eftir þeirri meginreglu að nýta sér ekki það hámark, sem heimilað er með reglugerðinni. 

Með því að vera tilbúinn til að starfa í samræmi við þessa reglugerð, býður Momentum viðskiptavinum sínum þá tryggingu að þeir geti fullvissað sína greiðendur um að öll innheimtustarfsemi sé í fullu samræmi við lög og reglugerðir. Meðal viðskiptavina okkar er fjöldi þekktra fyrirtækja ásamt stærstu sveitarfélögum landsins og er þetta mikil trygging fyrir þessa aðila, sérstaklega í því árferði sem nú ríkir.

Breytingarnar taka gildi f.o.m. 1.febrúar nk. Viðskiptavinum okkar verður sendur viðauki við innheimtusamning sinn, þar sem gerð verður grein fyrir þeim breytingum sem þetta hefur í för með sér. Það skal sérstaklega tekið fram að enginn kostnaður leggst á kröfuhafa okkar vegna þessara breytinga. 
    

DotNetNuke Admin Login LS Veflausnir

Momentum greiðslu- og innheimtuþjónusta ehf  -  Suðurlandsbraut 18, 108 Reykjavík, Kt.: 691200-2050  -  Sími: 510 7700 Fax: 510 7710   -   Tölvupóstur: momentum@momentum.is