ENGLISH   |   VEFYFIRLIT 

    


Samningsform Momentum

Nafn húsfélags:*
Kennitala:*
Heimilisfang:*
Netfang:*
Póstnúmer og staður:*
Sími*
GSM:

Innheimtuþjónusta:

Bankaupplýsingar:

Nafn viðskiptabanka og staður*
Banka- og reikningsnúmer*
Aðrar upplýsingar:

Upplýsingar um sendanda:

Fyrir hönd húsfélags*
Netfang (email)
Staður og dagsetning*

Skilmálar

Momentum greiðsluþjónusta ehf., kt. 691200-2050, Suðurlandsbraut 18, 108 Reykjavík, sem í samningi þessum er nefnt Momentum og kröfuhafi gera með sér svofelldan samning um milliinnheimtu krafna og vanskilakrafna:

1. gr. Efni samnings
Momentum tekur að sér milliinnheimtu viðskiptakrafna fyrir kröfuhafa eftir því sem hann óskar.

2. gr. Innheimtuferli
Sé óskað eftir fruminnheimtu hjá Momentum verður greiðsluseðill vegna krafna sendur út innan 3 virkra daga frá því að þær berast Momentum og skal greiðanda veittur ákveðinn frestur til greiðslu skuldar frá útgáfudegi greiðsluseðils. Greiðist krafan ekki innan tilgreinds tíma, fer krafan sjálfkrafa áfram í milliinnheimtu, sem felur í sér útsendingu innheimtuviðvörunnar og þriggja milliinnheimtubréfa, sem send eru með 10 daga millibili, samkvæmt framhlið samnings. Eftir að búið er að senda lokaaðvörun færist síðan krafan sjálfkrafa á úthringistig en þá hringja starfsmenn Momentum í greiðanda. Að milliinnheimtuferli loknu fær kröfuhafi lista yfir þær kröfur sem flytja á til löginnheimtu og hefur kröfuhafi þá viku frest til að stöðva innheimtu á þessu stigi. Gjaldheimtan annast löginnheimtu á kröfum frá Momentum nema sérstaklega sé óskað annars. Þær kröfur sem ekki er talið ráðlagt að senda í löginnheimtu eða löginnheimta hefur ekki borið árangur eru settar í kröfuvakt sé þess óskað. Löginnheimtuþjónusta Gjaldheimtunnar felur í sér í grunninn að tilkynning er send í upphafi innheimtuferils með 10 daga fresti. Verði málið ekki greitt á þeim tíma og frekari innheimta talin möguleg að mati Gjaldheimtunnar, þá er óskað eftir innheimtugögnum frá kröfuhafa. Að þeim fengnum er málinu vísað til héraðsdóms eða greiðanda send greiðsluáskorun eftir tegund kröfunnar. Ef innheimtan reynist árangurslaus fellir Gjaldheimtan niður alla sína þóknun en skuldfærir á kröfuhafa þann útlagða kostnað sem kominn er á málið.

3. gr. Uppgjör innheimtu
Uppgjör vegna innheimtumála hjá Momentum fara fram eigi síðar en næsta virka dag eftir að greiðslur berast frá greiðanda, hvort sem um er að ræða fullnaðargreiðslur eða hlutagreiðslur.

Takist innheimta greiðir skuldari allan kostnað við innheimtuna, seðilgjald, kr. 250 í fruminnheimtu en samkvæmt almennri gjaldskrá Momentum fyrir milliinnheimtu, sem hægt er að fá afrit af hjá Momentum.

Gjaldskráin miðast við 01.02.2009 og getur tekið breytingum fyrirvaralaust.Gjaldskrá Momentum skal lögð til grundvallar þóknun samkvæmt samningi þessum. Innheimtist krafa í löginnheimtu hjá Gjaldheimtunni ehf. ber greiðandi kröfunnar allan kostnað við innheimtuna en skil eru eigi síðar en tvisvar í viku. Fari krafa í löginnheimtu og reynist innheimta árangurslaus, þá greiðir kröfuhafi einungis útlagðan kostnað.

4. gr. Skuldajöfnunarheimild
Samkvæmt samningi þessum heimilar kröfuhafi Momentum skilyrðislaust að skuldajafna öllum ógreiddum reikningum Momentum á kröfuhafa við innheimtar kröfur, áður en til uppgjörs kemur við kröfuhafa.

5. gr. Greiðsludreifing
Momentum er heimilt að semja við greiðanda um greiðslu vanskilakrafna á milliinnheimtustigi með þeim takmörkunum að fullnaðargreiðsla greiðanda hafi að jafnaði farið fram eigi síðar en 6 mánuðum frá dagsetningu síðasta milliinnheimtubréfs.

6. gr. Kröfuhafakerfi Momentum.
Innifalið er í samningi þessum, prent-, pappírs- og útsendingarkostnaður við öll innheimtustig, kostnaður við mánaðarleg yfirlit, millibanka- og greiðsluseðlagjöld. Kröfuhafi fær aðgang að vefkerfi Momentum þar sem hann getur hvenær sem er séð stöðu sinna mála, afturkallað kröfur eða sent fyrirmæli.

7. gr. Afturköllun, niðurfellingar  o.fl.
Sé krafa greidd beint til kröfuhafa skuldbindur hann sig til að láta innborgun ganga fyrst upp í álagðan kostnað við kröfuna þ.e. innheimtukostnað Momentum og dráttarvexti kröfuhafa. Við greiðslu kostnaðar er stofnuð ný krafa hjá Momentum fyrir eftirstöðvum. Sé krafa stofnuð fyrir misskilning af hálfu kröfuhafa, afskrifuð eða felld niður af sérstökum ástæðum þá ber kröfuhafa að greiða kr. 250 auk vsk, í niðurfellingagjald fyrir hverja kröfu. Sé annarri lögmannsstofu en Gjaldheimtunni ehf. falin löginnheimta að lokinni millinnheimtu, ber kröfuhafa að greiða Momentum kr. 350,- afturköllunargjald á viðkomandi kröfu.

8. gr. 
Mál út af samningi þessum skal reka fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Submit
*Required

DotNetNuke Admin Login SKYRR Veflausnir

Momentum greiðslu- og innheimtuþjónusta ehf  -  Suðurlandsbraut 18, 108 Reykjavík, Kt.: 691200-2050  -  Sími: 510 7700 Fax: 510 7710   -   Tölvupóstur: momentum@momentum.is