Tilgangur og markmið
Markmið Momentum greiðslu- og innheimtuþjónustu, er að veita alhliða þjónustu við innheimtu allt frá útgáfu greiðsluseðils til löginnheimtu. Þannig að fyrirtæki geti haft innheimtu á einum stað hjá sérhæfðum aðila sem fylgir eftir hverri kröfu þar til hún er greidd. Momentum byggir á því að innheimtuferlið sé kröfuhafa algerlega að kostnaðarlausu en jafnframt að sanngirni sé gætt við ákvörðun innheimtukostnaðar.
Þannig fara í raun saman hagsmunir kröfuhafa og skuldara eins og frekast er unnt og markmiðið er að innheimtan sem slík raski ekki framtíðarviðskiptahagsmunum aðila.
Fyrirtækið var stofnað í þeim tilgangi að mæta kröfum nútímans um sérhæfða og skilvirka innheimtu ásamt hraðara upplýsingaflæði um vanskil
Traust og örugg starfsemi
Ekkert annað innheimtufyrirtæki getur boðið viðskiptavinum sínum eins hagkvæma og örugga lausn á innheimtu og Momentum. Innheimtukerfi fyrirtækisins hefur jafn skilvirka eiginleika og greiðsluþjónusta banka. Momentum greiðir innheimtar kröfur strax til viðskiptavina og þeir fá ætíð höfuðstól og dráttarvexti óskerta í sinn hlut. Uppgjör eru skýr og einföld, upplýsingaflæðið er hratt þannig að viðskiptavinir hafa alltaf yfirsýn yfir raunstöðu útistandandi krafna.
Fyrirtæki og starfsemi
Momentum tók til starfa árið 2000. Stofnendur voru fjórir lögmenn sem hafa sérhæfingu og margra ára starfsreynslu í innheimtuaðgerðum.
Momentum býður heilsteypta innheimtuþjónustu sem er aðlöguð að óskum og þörfum hvers viðskiptavinar. Innifalið í þjónustunni er m.a. ýmis ráðgjöf um innheimtulausnir, greining á viðskiptakröfum og mat á greiðsluhæfi skuldara.