Tengingar við fjármálakerfi kröfuhafa
Momentum leggur mikla áherslu á þjónustu við kröfuhafa.
Í því felst meðal annars að kröfuhafi hefur aðgang að upplýsingum um sín mál í innheimtu í gegn um Þjónustuvef Momentum.
Einnig bjóðum við upp á beintengingar við helstu bókhaldskerfi, en þar má t.d. nefna Navision og DK. Kröfuhafi með kröfur í innheimtu hjá Momentum hefur þannig möguleika á að sækja upplýsingar, eins og t.d. stöðu mála á hverjum tíma, aðgerðasögu, o.fl. beint inn í sitt bókhaldskerfi.